Ungmennaráð

Fundur nr. 1

Kjörtímabilið 2026—2030

5. október 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 16:30
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 1 í ungmennaráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2026—2030, haldinn á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps 5. október kl 16:30.

1. Erindi#1-erindi

  • Erind­is­bréf ungmenna­ráðs

    ​Farið var yfir erindisbréf Ungmennaráðs Vopnafjarðar og hlutverk ráðsins á nýju kjörtímabili. Rætt var um mikilvægi þess að ráðið sé virkur vettvangur fyrir skoðanir og þátttöku ungs fólks í sveitarfélaginu.

    Bókun: Ungmennaráð samþykkir að vinna samkvæmt erindisbréfi sínu.


  • Kjör formanns og vara­for­manns

    ​

    Fram fór kjör formanns og varaformanns Ungmennaráðs.

    Niðurstaða kjörs:

    • Formaður: Eva Lind Magnúsdóttir
    • Varaformaður: Viktor Páll Oddsson


  • Full­trúi í farsæld­arráð Aust­ur­lands

    Fulltrúar í farsældarráð Austurlands eru Eva Lind Magnúsdóttir aðalmaður og varamaður er Vignir Þráinsson


  • Skýrsla ungmenna­ráðs

    ​Lögð var fram skýrsla Ungmennaráðs fyrir liðið kjörtímabil 2022-2026. Farið var yfir helstu verkefni, umsagnir og þátttöku ráðsins í málefnum sveitarfélagsins.

    Bókun: Ungmennaráð þakkar fráfarandi ungmennaráði fyrir mikilvægt starf á liðnu kjörtímabili.


  • Funda­dag­skrá starfs­ársins 2026-2027

    ​

    Rætt var um fundafyrirkomulag og áherslur starfsársins 2026-2027.

    Bókun: Stefnt skal að reglubundnum fundum yfir veturinn samkvæmt nánari dagskrá sem formaður og starfsmaður ráðsins vinna að.


  • Barn­vænt sveit­ar­félag

    ​

    a)   Fræðsla

    Farið var yfir fyrirhugaða fræðslu fyrir nýtt Ungmennaráð um Barnvænt sveitarfélag og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

    Bókun: Lögð er áhersla á að allir fulltrúar ráðsins fái kynningu á verkefninu og hlutverki Ungmennaráðs innan þess.

    b)   Samstarfssamningur við UNICEF

    Rætt var um áframhaldandi þátttöku Vopnafjarðarhrepps í verkefninu Barnvænt sveitarfélag og undirbúning nýs samstarfssamnings við UNICEF fyrir næsta innleiðingarhring.

    Bókun: Ungmennaráð lýsir yfir stuðningi við áframhaldandi þátttöku sveitarfélagsins í verkefninu.

    c)    Stýrihópur

    Farið var yfir skipan og hlutverk stýrihóps Barnvæns sveitarfélags.

    Bókun: Ungmennaráð telur mikilvægt að rödd barna og ungmenna komi skýrt fram í störfum stýrihópsins.

    d)   Áherslur Ungmennaráðs

    Rætt var um áherslur ráðsins í verkefninu Barnvænt sveitarfélag.

    Helstu áherslur sem komu fram:

    • Aukið samráð við börn og ungmenni.
    • Bætt aðstaða til íþrótta- og tómstundaiðkunar.
    • Efling geðræktar og vellíðunar ungmenna.
    • Virk upplýsingamiðlun til barna og ungmenna um mál sem þau varða.
    • Aukin þátttaka ungmenna í ákvarðanatöku sveitarfélagsins.

     

    Bókun: Áherslurnar verða hafðar til hliðsjónar við gerð starfsáætlunar ráðsins.


Fundi slitið kl. 18:00.