Umhverfis- og framkvæmdaráð
Fundur nr. 2
Kjörtímabilið 2026—2030
14. október 2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur nr. 2 haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2026-2030, 14. október 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 11:00.
- Staða lífúrgangs á Austurlandi
Fyrir liggur minnisblað um stöðu mála varðandi lífúrgang á Austurlandi en Molta ehf í Eyjafirði sem tekið hefur við lífúrgangi frá sveitarfélögum á Austurlandi hefur ákveðið að hætta móttöku lífúrgangs frá Austurlandi.
Lagt fram til kynningar.
- Ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands
Fyrir liggja ályktanir aðalfundar Náttúruverndarsamtaka Austurlands, sem haldinn var í Skálanesi í Seyðisfirði, sunnudaginn 23. ágúst 2026.
Lagt fram til kynningar.
- Veiðihúsið Hofsá
Fyrir liggur umsókn um leyfi til að kanna jarðveg á lóðinni Einarstaðir 2 undir grunni veiðihússins sem á að rísa á lóðinni.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að, með vísan til reglugerðar nr. 112/2012, verði samþykkt að veita umsækjanda leyfi til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði þó að byggingarheimild hafi ekki verið veitt. Fyrir skal liggja rannsóknaráætlun sem skilgreinir tilgang, aðferðir, umfang rasks, ábyrgð og frágang.
Samþykkt samhljóða.
- Skautasvell - staðsetning
Fyrir liggur beiðni um heimild fyrir staðsetningu skautasvells yfir vetrartímann á skilgreindu svæði á Vopnafirði. Svæðið er ætlað íbúum og gestum á Vopnafirði og þannig verði skapað skemmtilegt útivistar- og afþreyingartækifæri yfir vetrarmánuðina og verður þess gætt að það verði snyrtilegt og vel frágengið yfir sumartímann.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að verða við fyrirliggjandi ósk um staðsetningu skautasvells enda að mati ráðsins um að ræða aðgerð sem mun hafa jákvæð áhrif sem áhugavert útivistar- og afþreyingartækifæri fyrir bæði íbúa og gesti.
Gæta skal þess ef farið verður í jarðvegsframkvæmdir að slíkt sé gert í samráði við þjónustumiðstöð sveitarfélagsins m.a. vegna varmalagna sem eru á hluta umrædds svæðis.
Samþykkt samhljóða.
- Bréf frá eldri borgurum
Fyrir liggur erindi frá stjórn eldirborgarafélagsins á Vopnafirði varðandi það að bæta við bekkjum á gönguleiðum á Vopnafirði.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að fela forstöðumanni þjónustumiðstöðvar að taka til skoðunar tilfærslu núverandi bekkja, meta hvort þörf sé á viðbótum auk greiningar á framtíðarfyrirkomulagi göngustíga.
Samþykkt samhljóða.
- Hafnarsambandsþing 2026.
Fyrir liggur að Hafnasambandsþing 2026 verður haldið í Reykjanesbæ dagan 22.-23. október nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að Björn Ingimarsson, staðgengill sveitarstjóra, mæti á Hafnasambandsþing 2026 í umboði Vopnafjarðarhrepps.
Samþykkt samhljóða
- Hauksstaðir
Fyrir liggur umsókn um niðurrif gamals íbúðarhúss og skemmu á Hauksstöðum á Vopnafirði ásamt umsögn Minjastofnunar Íslands.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps veitir heimild til niðurtöku umræddra eigna að því gefnu að fyrir liggi áætlun um
meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs þar sem fram koma upplýsingar er gerð er grein fyrir í 15.2.2. gr. reglugerðar um mengun frá mannvirkjum og meðhöndlun byggingar- og niðurrifsúrgangs. Staðgengli sveitarstjóra falið að sjá til þess að þessu verði komið á framfæri við umsækjanda.
Samþykkt samhljóða
Fundi slitið kl. 12:25.