Menningar- og atvinnumálanefnd
Fundur nr. 3
Kjörtímabilið 2026—2030
14. október 2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur nr. 3, kjörtímabilið 2026-2030, í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps haldinn á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 14. október klukkan 08:30.
- Austurbrú
Inn á fundinn tengdist um fjarfundarbúnað framkvæmdastjóri Austurbrúar, Bryndís Fiona Ford, og var farið yfir með henni m.a. mögulega aðkomu Austurbrúar að atvinnuþróunarverkefnum á Vopnafirði s.s. verkefnið Brothættar byggðir í samstarfi við Byggðastofnun og Austurbrú. Sveitarstjóra falið að vinna verkefnið áfram
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Menningar- og atvinnumálanefnd felur sveitarstjóra að vinna verkefnið áfram og skoða möguleika verkefnisins Brothættar byggðir og leggja fyrir sveitarstjórn til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða
- Viðburðarhópur
Auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að starfa í viðburðarhóp fyrir sveitarfélagið. Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að Sara Elísabet Svansdóttir og Selja Janthong haldi utan um helstu viðburði sveitarfélagsins og felur formanni nefndar að boða þær á fund með nefndinni.
Samþykkt samhljóða.
- Spretthópur í atvinnumálum
Fyrir liggur erindi frá sveitarstjórn um að nefndin skipi 5 fulltrúa í sprett hóp um atvinnumál í Vopnafirði, þar sem stefnt er að því að ráða tímabundinn verkefnastjóra til greiningar á tækifærum í nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á Vopnafirði. Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að Linda Björk Stefánsdóttir, Helga Kristín Tryggvadóttir, Helgi Þorsteinsson, Rögnvaldur Þorgrímsson og Andreas Ljungberg skipi hópinn og felur sveitarstjóra að útbúa erindisbréf og boða til fyrsta fundar.
- Launakostnaður
Farið var yfir verkefnið og áframhaldandi vinnu. Lagt fram til kynningar.
- Viðburðadagatal
Fyrir liggur viðburðardagatal fyrir komandi ár og það sem eftir er þessa árs.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að tendrun jólatrés verði föstudaginn 27.nóvember og felur sveitarstjóra að birta komandi viðburði á dagatali hreppsins.
Samþykkt samhljóða.
- Styrkveitingar
Fyrir liggja dagsetningar af þeim styrkjum sem sveitarfélagið hefur kost á að sækja í það sem eftir er árs.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:
Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna umsókn og sækja um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða varðandi bætt aðgengi að Selárlaug.
Samþykkt samhljóða.
- Önnur mál
A. Nefndinni barst beiðni um skoðun þess að stofnaður yrði
stýrihópur sem tengist bókasafni sveitarfélagsins. Sveitarstjóra
falið að vinna málið áfram í samráði við fjölmenningarfulltrúa og
stofnun hópsins vísað til fjárhagsáætlunar.
B. Dagar myrkurs fara fram 26.október – 6.nóvember, unnið er að
dagskrárgerð og auglýst hefur verið eftir áhugasömum
einstaklingum og fyrirtækjum til að taka þátt.
C. Kaupvangur - rætt var um að vinna þurfi hraðar að því að efla
starfsemi í húsinu.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:25.