Fjöl­skylduráð

Fundur nr. 2

Kjörtímabilið 2026—2030

12. október 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 23:00
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 2 í fjölskylduráði kjörtímabilið 2026 - 2030 var haldinn þriðjudaginn 6. október 2026 kl. 8:15 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps. Í upphafi fundar var óskað eftir að taka inn með afbrigðum, málefni Ölduungaráðs og stýrihóps Barnvænna sveitarfélaga. Samþykkt samhljóða.

1. Erindi#1-erindi

  • Leik­skóli viðmið mætinga á skrán­inga­dögum.

    ​a) Breyting á vistunartíma.

    Lögð var fram tillaga frá leikskólastjóra um breytingu á vistunartíma leikskólabarna þannig að foreldrar geti sótt um leikskólapláss til kl. 14:30 eða kl. 15:30 auk núverandi úrræða.

    Samþykkt samhljóða að hafa sveigjanlegan skráningartíma. 

    b) Lágmarks viðmið fyrir opnun deilda á skráningadögum verði fimm börn. 
    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með tveimur atkvæðum. Arnar, Guðjón og Bjarney sitja hjá.

    Bókun Fjölskylduráðs: Fjölskylduráð ræddi tillögurnar og fól starfsmanni að vinna málið áfram í samráði við leikskólastjóra og leggja fram frekari upplýsingar um áhrif breytinganna. 


  • Þjón­ustumið­stöð

    ​Bjartur mætti á fundinn og kynnti starfsemi Þjónustumiðstöðvarinnar, helstu verkefni hennar og þá þjónustu sem þar er veitt. Fara þarf í vinnu við endurnýjun ljósastaura  m.a. 

  • Eftir­lits­mynda­vélar - upplýs­ingar.

    ​Verið að bíða eftir svörum frá Securitas vegna eftirlitsmyndavéla við leik- og grunnskóla. 

  • Starfs­áætlun fjöl­skyldu­ráðs

    ​Farið var yfir starfsáætlun fjölskylduráðs fyrir kjörtímabilið. Rætt var um helstu áherslur ráðsins á komandi misserum, meðal annars málefni barna og fjölskyldna, þjónustu við eldri borgara, forvarnir og lýðheilsumál.

  • Tónlist­ar­skóli Akur­eyrar hljóð­færanám á miðstigi

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Öldungaráð tilnefn­ingar í ráðið

    Sandra Konráðsdóttir, Eyrún Guðbergsdóttir og Arnar Ingólfsson verða fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps.

    Fyrsti fundur öldungaráðs verður 21. október 2026.


  • Stýri­hópur um Barn­vænt sveit­ar­félag

    ​Fyrsti fundur verður haldinn 22. okt 2026. Starfsmanni falið að vinna málið áfram

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:36.